Vísnakver Hartmanns # 70120

Regular
4.900 kr
Sale
4.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Ísafjörður
Date
1951
Condition
Binding
Vísnakver Hartmanns.
Teitur Hartmann var fæddur í Tungumúla í Rauðasandshreppi. Foreldrar hans voru Jón Bjarnason og Þórdís Teitsdóttir. Ungur fluttist hann með þeim til Patreksfjarðar og ólst þar að mestu upp. Innan við tvítugt flutti hann til Ísafjarðar og fór að vinna sem lyfjasveinn, fyrst hjá lækninum og síðar lyfsalanum. Á árunum 1912–1916 dvaldi hann í Ameríku en heimkominn aftur vann hann í Reykjavíkur Apóteki og Laugavegs Apóteki. Vorið 1926 flutti hann austur á fjörðu og bjó þar fyrst á Eskifirði og síðan á Norðfirði, vann þar bæði við lyfsölu og húsamálningu. Árið 1925 kvæntist hann Guðrúnu Guðfinnsdóttur hjúkrunarkonu á Eskifirði. Árið 1942 fluttust þau hjón til Ísafjarðar og vann Teitur þar í Ísafjarðar Apóteki til æviloka. Ekki hlaut Hartmann mikla formlega skólamenntun en varð þó vel að sér á ýmsum sviðum, til dæmis í tungumálum og náttúrufræðum. Þá var hann liðtækur skákmaður. Hann var talsvert veikur fyrir víni og tengjast ýmsar þekktustu vísur hans kynnum hans við Bakkus. Árið 1951 gaf Guðrún ekkja hans út Vísnakver Hartmanns.


Enga frekju, haf þig hægan

heyrðu sannleikann:

Til að gera garðinn frægan

gekk ég inn í hann!

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.