Yfir bænum heima # 61171

Regular
1.900 kr
Sale
1.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík
Date
2020
Condition
Binding
Yfir bænum heima. Skáldsaga eftir Kristínu Steinsdóttur.
Það er vor í litlum bæ við sjóinn. Atvinna er stopul og unga fólkið dreymir um bjartari tíma. En þegar stríðið kemur í bæinn, sjálf heimsstyrjöldin, breytist allt. Göturnar fyllast af erlendum hermönnum, braggar rísa, dansinn dunar og bæjarbúar þurfa vegabréf til að komast á milli hverfa. Úti á firði liggja herskip og yfir vofir ógnin: Flugvélar með sprengjur sem enginn veit hvar falla.


Yfir bænum heima segir frá stórfjölskyldu á Seyðisfirði, nágrönnum og heimilisvinum. Ásta er fimmtán ára þegar ófriðurinn hefst og spennt fyrir nýjungum. Þrúða systir hennar á ung börn og er undir miklu álagi í starfi sínu á Símstöðinni. Rúna móðir þeirra tekur öllu af æðruleysi en heimilisfaðirinn Snjólfur er andsnúinn hernum þótt nú hafi þau nóg að bíta og brenna. Hver kynslóð bregst við með sínum hætti og milli heimafólks og aðkomumanna kviknar smám saman vinátta og væntumþykja – en styrjöldin, lífsháskinn og umrótið í bænum marka djúp spor.


Kristín Steinsdóttir hefur einstakt lag á að skapa trúverðugar og skemmtilegar sögupersónur og skrifar af hlýju og næmni um örlög þeirra og daglegt líf. Kristín er geysivinsæll verðlaunahöfundur og bækur hennar hafa hlotið mikið lof heima og erlendis.


Kristín Steinsdóttir hefur sent frá sér yfir þrjátíu bækur, birt sögur í safnritum og samið leikrit fyrir útvarp og svið. Hún hefur meðal annars hlotið Íslensku barnabókaverðlaunin, Norrænu barnabókaverðlaunin og Sögustein fyrir barnabækur sínar en fyrir skáldsögur ætlaðar fullorðnum hefur hún verið tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs, fengið Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin tvisvar. Verk hennar hafa komið út á Norðurlöndunum, í Þýskalandi og víðar.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.