Á sjókeip kringum landið # 91225
- Regular
- 4,900 kr
- Sale
- 4,900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Á sjókeip kringum landi. Gísli H. Friðgeirsson segir frá.
Gísli H. Friðgeirsson reri fyrstur Íslendinga á kajak umhverfis Ísland sumarið 2009, þá 65 ára gamall. Hann hélt dagbók á leiðinni, félagarnir sendu daglega skilaboð um veður og sjávarföll, fylgdust með staðsetningamerkjum frá GPS-sendi á bátnum, voru ávallt viðbúnir að koma til hjálpar og birtu samtíma frásögn af róðrinum á vefnum. Ferðasaga þessi er einstök og áhugaverð fyrir alla sem unna ævintýralegum ferðum og þeim sem vilja þekkja betur strendur Íslands og hegðun sjávar þar. Leitast var við að hafa allar upplýsingar nákvæmar. Örnefnaskrá og orðskýringar eru í bókarlok. Við heimkomu var Gísla fagnað af fjölskyldu, vinum og róðrarfélögum. Ekki er þó síðri sú innri gleði sem fylgir unnum sigri og fá lesendur að lifa sig inn í baráttu og sigurgleði ferðalangsins eftir því sem sögunni vindur fram.