Blómið sem þú gafst mér # 90111
- Regular
- 6.900 kr
- Sale
- 6.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Blómið sem þú gafst mér. Úrval ljóða eftir Nínu Björk Árnadóttur. Ritstýrt af Jóni Proppé.
Nína Björk Árnadóttir (19412000) var án efa ein mikilvægasta röddin í skáldskap síðustu áratuga. Einlæg og nærgöngul ljóð hennar tjá sterkar tilfinningar og áhrifamikla sýn á ástina og óttann, söguna, samfélagið og hlutskipti kvenna. Þetta ljóðaúrval hefur að geyma meira en helming ljóðanna sem Nína birti á ferli sínum sem og ljóð og nokkrar kvenlýsingar úr handriti sem var ólokið þegar hún lést. Hér gefst lesendum því tækifæri til að kynnast eða rifja upp kynni sín af dulmögnuðum ljóðaheimi þessarar einstöku skáldkonu. Jón Proppé valdi ljóðin í bókina og ritaði eftirmála. (Heimild: Bókatíðindi 2000).