ð ævisaga # 89722
- Regular
- 19.500 kr
- Sale
- 19.500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
ð ævisaga. Höfundar eru Stefán Pálsson, Anton Kaldal Ágústsson, Gunnar Vilhjálmsson og Steinar Ingi Farestveit.
Sagan af því hvernig útdauður bókstafur varð óaðskiljanlegur hluti nútímaíslensku er ævintýraleg og fáum kunn. Ð-ið var tekið upp af íslenskum skrifurum á miðöldum en datt svo úr tísku og sást ekki í málinu í margar aldir. Það birtist fyrst á prenti í Lundúnum á tímum Elísabetar fyrstu en rataði ekki á íslenskar bækur fyrr en í Kaupmannahöfn á tímum Fjölnismanna. Ð-ið er hæverskt og tranar sér aldrei fremst, en fáir bókstafir hafa átt jafn viðburðaríka ævi. (Bókatíðindi 2012).