Hagyrðingur af Höfðaströnd # 90039
- Regular
- 9.500 kr
- Sale
- 9.500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Hagyrðingur af Höfðaströnd. Ljóð og lausavísur eftir Harald Hjálmarsson frá Kambi í Deildardal. Björn Dúason annaðist útgáfu.
Haraldur var fæddur á Hofi á Höfðaströnd 21. desember árið 1908, sonur Hjálmars Þorgilssonar og konu hans, Guðrúnar Magnúsdóttur. Haraldur missti móður sína á fyrsta ári. Hjálmar, faðir hans flutti að Kambi í Deildardal 1913 og þar ólst Haraldur upp og var jafnan kenndur við þann bæ. Á fullorðinsárum vann hann ýmis störf bæði í Skagafirði og á Siglufirði en síðast var hann bankaritari í Útvegsbankanum í Reykjavík. Haraldi þótti sopinn góður og fáir hafa ort jafnvel um kynni sín við Bakkus og hann. Haraldur dó 15. febrúar 1970. Árið 1992 var kveðskapur hans gefin út á bók. Björn Dúason safnaði efni til hennar og skrifar „Aðfaraorð“ en Hjalti Pálsson ritar þar um ævi Haralds.
Gott eintak í góðu, skreyttu skinnbandi.