Heimur Hávamála # 89001

Regular
3.900 kr
Sale
3.900 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. Menningarsjóður, 1990.
Date
Condition
Binding

Heimur Hávamála eftir Hermann Pálsson.

Hávamál eru í hópi þeirra kvæða sem hver hugsandi Íslendingur telur sér skylt að lesa af gaumgæfni, ekki einungis í því skyni að kynnast Óðni hinum Háva", höfuðskáldi allra norrænna þjóða frá upphafi vega, heldur einnig til að fræðast um mannleg verðmæti og vandamál af vörum hins forna goðs. En með því að kvæðið er myrkt á köflum telja spekingar rétt að lesa það í ljósi þeirra rita sem skáldið kann að hafa numið á sínum tíma. Á hinn bókinn þykir fróðlegt að veita einhver skil á Hallgrími Péturssyni og öðrum meisturum sem færðu sér Hávamál í nyt.


Fyrsti kaflinn á Heimi Hávamála eftir Hermann Pálsson í Edinborg fjallar um eðli þeirra og gerð, hinn næsti rekur heilræði og önnur spakmæli í réttri stafrófsröð. Þriðji bálkur er um hugmyndir í hinu forna kvæði, þar er vikið að kenningum Óðins um konur og ástir, vináttuog víðförli, hugrekki og siðgæði, glaðlyndi, gjafmildi, hófsemi, örlög og önnur atriði sem Óðni voru sérstaklega hugfólgin. Þessu næst fylgja kaflar um forn minni, píslir Óðins og rúnir, galdur og latnesk spekiorð frá fyrri öldum sem hníga í sömu átt og kenningar Hávamála. Að lokum fylgja skrár um þau fornrit og önnur hjálpargögn sem stuðst er við.
(Káputexti).

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.