Island. Erforscht, Erschaut, Erlebt! # 88995
- Regular
- 39.500 kr
- Sale
- 39.500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Island. Erforscht, Erschaut, Erlebt! Eine erlebnismäsige Schilderung der Insel am Polarkreis. Paul Burkert. Mit 50 Abbildungen.
Í tilraunum Himmlers til að komast til áhrifa hér á landi er ein aðalsögupersónan ljósmyndarinn Paul Burkert sem m.a. var stoð og stytta ólympíufaranna sem kepptu í Berlín 1936. Burkert útvegaði m.a. tveim íslenskum læknum námsstöður við sjúkrahús í Berlín og Hamborg. Burkert þóttist vera einhvers konar vísindamaður, en það hafði hann að yfirvarpi þegar hann fór í njósnaleiðangra til Íslands og Grænlands á árunum 1934-1937. Það verður ekki af Burkert tekið að hann var snjall ljósmyndari. Hann gerði kynningarkvikmynd fyrir Fiskimálanefnd um land og þjóð til að reyna að auka sölu á fiskafurðum. Myndin var gerð í samvinnu við Guðmund Kamban, fengin var að láni dönsk herflugvél sem kom hér við og teknar loftmyndir af Reykjavík og nágrenni. Gleðskapur íslenskra valdamanna á Hótel Borg var fyrirferðarmikill í myndinni en lítið fjallað um fiskvinnslu. Þetta makalausa fyrirtæki kostaði 11.000 krónur og var umsvifalaust afskrifað um 10.900 kr. og falið ofan í dýpstu skúffu fiskimálanefndar.