Íslenskar kynjaskepnur # 89509

Regular
9.500 kr
Sale
9.500 kr
Regular
Sold Out
Unit Price
per 
Location
Reykjavík. JPV, 2011.
Date
Condition
Binding

Íslenskar kynjaskepnur. Eftir Jón Baldur Hlíðberg og Sigurð Ægisson.

Íslenskur þjóðsagnaarfur geymir aragrúa frásagna um furðudýr og ferlegar ófreskjur. Þessar skepnur skutu landsmönnum skelk í bringu á fyrri öldum en næsta hljótt hefur verið um þær upp á síðkastið, flestar alla vega.

Í bókinni eru rifjaðar upp helstu þjóðsögur og sagnir um þessi kynjadýr og meðal annars stuðst við fjölda munnlegra heimilda. Skepnunum og sérkennum þeirra eru gerð nákvæm og glögg skil í texta og birtingastaðir sýndir á korti. Loks varpa einstæðar myndir nýju ljósi á þennan merkilega þátt í þjóðarsögunni.

Jón Baldur Hlíðberg myndlistarmaður er löngu landskunnur fyrir dýrafræðimyndir sínar sem prýtt hafa fræðirit og margvíslegt fræðsluefni á undanförnum árum. Hér spreytir hann sig á nýjum vettvangi. Sigurður Ægisson er þjóðfræðingur og guðfræðingur að mennt og hefur í gegnum tíðina skrifað jöfnum höndum um náttúrufræði, þjóðfræði og guðfræði.

Secure online shopping

SHOP WITH CONFIDENCE

SUBSCRIBE AND SAVE

Immerse Yourself in the World of Literature with Our Exclusive Quarterly Book Subscription.

RETURNS

Embark on a literary journey with our curated collection of books, backed by our returns policy.

DELIVERY

Experience the joy of reading with our premium selection of books. Plus, enjoy fast delivery on every order.