Jarðlag úr tímanum # 91238
- Regular
- 3,900 kr
- Sale
- 3,900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Jarðlag úr tímanum. Minningamyndir úr barnæsku. Hannes Pétursson segir frá.
Skáldið Hannes Pétursson tekur sér stöðu á Nöfunum fyrir ofan Sauðárkrók og skyggnist yfir svið bernsku sinnar norður í Skagafirði, rifjar upp mannlífið á Króknum, sumrin frammi í sveit, vegagerð á stríðsárunum og dregur upp minnisstæðar myndir af samferðamönnum í listilega smíðuðum frásögnum. Hér er lýst miklum breytingartímum sem mótuðu ungan Skagfirðing en umturnuðu einnig landinu öllu, heiminum öllum.