Lék ég mér í túni # 90409
- Regular
- 2,900 kr
- Sale
- 2,900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Lék ég mér í túni. Ljóð eftir Gest Guðfinnsson.
Gestur fæddist og ólst upp í Litla-Galtardal á Fellsströnd í Dalasýslu. Foreldrar hans voru Sigurbjörg Guðbrandsdóttir og Guðfinnur Jón Björnsson. Á árunum 1933-43 starfaði hann sem bóndi í Litla-Galtardal og á Ormsstöðum í Klofningshreppi. Á meðan hann bjó í Dölunum sinnti hann ýmsum félagsmálum samhliða bústörfum. Hann gegndi um hríð starfi oddvita hreppsnefndar Klofningshrepps, var formaður Ungmennafélagsins Vonar í Klofningshreppi, og sat í stjórn Ungmennasambands Dalamanna og Búnaðarfélags Klofningshrepps. Árið 1943 flutti Gestur til Reykjavíkur og þar byrjaði hann tveimur árum síðar að vinna fyrir Alþýðublaðið. Þar vann hann um árabil, lengst af sem blaðamaður. Hann starfaði einnig sem fararstjóri fyrir Ferðafélag Íslands.