Menningarsetrið í Skógum 50 ára # 91187
- Regular
- 4,900 kr
- Sale
- 4,900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Menningarsetrið í Skógum 50 ára. Skógaskóli og Skógasafn 1949-1999. Tekið saman og skráð af Jóni R. Hjálmarssyni.
Bókin er tekin saman í tilefni 50 ára afmæli skólans og safns í Skógum á haustdögum 1999.
Í upphafi bókarinnar er rakin almenn skólasaga í stuttu máli og getið um alþýðufræðslu og æðri menntun á Suðurlandi að fornu og nýju. Þá er sagt frá langdregnum og árangurslausum tilraunum til stofnunar sameiginlegs alþýðuskóla. Í aðalefni bókarinnar er skýrt frá jarðargjöf og aðdraganda að stofnun Héraðsskólans á Skógum. Einnig er í bókinni þáttur um Byggðasafn Rangæinga og V-Skaftfellinga í Skógum.
Jón R. Hjálmarsson er sagnfræðingur að mennt. Hann starfaði lengi sem skólastjóri og síðar fræðslustjóri á Suðurlandi.