Svífðu seglum þöndum og Íshafsævintýri # 88939
- Regular
- 2.900 kr
- Sale
- 2.900 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Svífðu seglum þöndum og Íshafsævintýri. Jóhann J. E. Kúld segir frá.
Þessar tvær bækur Jóhanns Kúld eru hér endurprentaðar í einu bindi. Þær komu fyrst út fyrir hartnær 4 áratugum og hafa um fjölda ára verið algerlega ófáanlegar.
Lýsingar sem hér er að finna eru skáldskap líkastar, þótt þar sé hvert orð satt, enda vænir enginn Jóhann Kúld um að fara með fleipur.
Selaveiðar í Norðurísnum. - Hrikaleikur æðisgenginna náttúruafla. - Barátta um líf eða dauða. - Línuveiðar með norskum á Íslandsmiðum. - Ævintýraleg slagsmál um borð. - Ótrúleg útgerðarsaga á Siglufirði. - Landleguróstur og kvennamá og áfram mætti telja, því svona er öll þessi bók, æsispennandi frá upphafi til enda. Bók sem enginn sjómaður getur látið ólesna. (Káputexti).