Wagner og Völsungar # 91208
- Regular
- 9,500 kr
- Sale
- 9,500 kr
- Regular
- Unit Price
- per
Wagner og Völsungar. Niflungahringurinn og íslenskar fornbókmenntir. Eftir Árna Björnsson.
Gott eintak, forlagsband og kápa. Árituð "uppá gamlan kunningsskap".
Dr. Árni Björnsson um niðurstöður rannsókna sinna á því hvernig Richard Wagner nýtti fornar íslenskar heimildir til að skapa viðburðarás og texta Niflungahringsins. Útkoma bókarinnar er mikið fagnaðarefni fyrir Richard Wagner félagið á Íslandi, sem átti frumkvæðið að rannsóknum Árna og stuðlaði að framgangi þeirra. Rannsóknir Árna eru afar þýðingarmiklar fyrir áhugafólk um íslenskar fornbókmenntir og ekki síður fyrir unnendur verka Richards Wagners því í ljós kemur að Wagner sótti mun meira til íslenskra fornrita en áður hefur verið talið.
Þótt kynning Árna á niðurstöðum rannsókna hans sé megintilgangur bókarinnar, kemur hann þó víðar við í bók sinni. M.a. rekur hann aðdragandann að áhuga Þjóðverja á íslenskum fornritum á 18. og 19. öld og segir frá tengslum Íslendinga við tónlist Wagners í gegnum tíðina. Árni segir m.a. frá fjölmörgum íslenskum listamönnum, sem hafa tekið þátt í flutningi á verkum Wagners og frá ferðum Íslendinga á tónlistarhátiðina í Bayeruth.